logo

Tóti

Servíettuútreikningar með 72 reglunni

Þar sem servíettuútreikningarnir á lánum virðast hafa fengið ýmsa til að hugsa þá datt mér í hug að láta fljóta aðra servíettuformúlu sem gagnast getur við fjárhagslegar ákvarðanir.

Hún virkar bæði fyrir skuldir og sparnað og gengur út á það hversu langan tíma tekur að tvöfalda tiltekinn höfðustól með tilteknum vaxtavöxtum - svona eins og verðtryggingu.

Reglan er einföld:

72/vaxtaprósenta = tvöföldunartími í árum.

6% verðbólga gefur þá:

72/6=12 ár að tvöfalda höfuðstólinn.

Óverðtryggt lán á 12,2% vöxtum:

72/12,2=5,9 ár að tvöfalda höfuðstólinn.

Hin hliðin er náttúrulega sú að ef þú leggur milljón inn á verðtryggðan reikning með 6,5% vöxtum og snertir ekki vextina, þá áttu tvær milljónir eftir 5,76 ár, ef verðbólgan verður 6%. Er það furða að fólkið sem á pening í þessu landi geymir þá bara inni á bankabók, frekar en að fjárfesta í uppbyggingarstarfi? Miðað við núverandi verðbólgu þá tvöfaldast peningarnir á rétt rúmum fjórum árum. Ríkistryggt og áhættulaust.

Skráð af Tóti
Fri, 4 Sep 2009 12:51 Kreppufjas

Athugasemdir

Þú verður að skrá þig inn til að skilja eftir skilaboð

Click here to comment without signing in

Name:
Website:
Comment:
captcha
Enter the code: