Tóti
Hinn Íslenzki Sprotasjóður - á raðgreiðslum
Við erum nokkur búin að vera að velta fyrir okkur fjármögnun sprotafyrirtækja undanfarið.
Það er mýgrútur sprota að spretta upp á landinu og flestir þeirra eru að lenda í því sama hvað varðar aðgang að fjármagni; hann er lítill sem enginn.
Í stað þess að leggja árar í bát, þá erum við að velta fyrir okkur hvort ekki sé skynsamlegt að búa til vettvang þar sem ég, þú og þau hin geta lagt sprotum lið beint. Ekki treysta á stofnanavædda sprotasjóði, ekki horfa til ríkisins eða bankanna um reddingar, heldur bretta upp ermar og gera þetta bara sjálf.
Eigi skal gráta Björn bónda - og það allt saman.
En það eru nokkrir hlutir sem þurfa að vera á hreinu:
Þetta er áhættufjárfesting - og ekkert víst að við græðum á þessu fé, en við hjálpum þó til við að búa til ný störf og afla gjaldeyris, sem þýðir að við græðum öll.
Við eignumst ekki hlut í fyrirtækjum, við eignumst hlut í sjóði sem á í fyrirtækjum. Þannig getum við komið í veg fyrir óæskilega endurvakningu gráa markaðarins.
Við veljum sjálf hvaða fyrirtæki sjóðurinn leggur fé í - við einfaldlega kjósum um það reglulega hver af þeim félögum sem í hann sækja eiga skilið að fá pening. Atkvæðavægi fer eftir fjölda króna sem hvert okkar leggur í sjóðinn.
Vigtar þetta eitthvað? Tja, ef 5000 manns leggja 3500 kall að meðaltali í púkk á mánuði, þá er fjárfestingargeta sjóðsins 17,5 milljónir á mánuði, sem er nóg til að borga 50 manns laun í einn mánuð á hóflegum sprotalaunum.
Sjálfur er ég til í að leggja 20 þúsund kall á mánuði í svona dæmi.
Hvað með þig? Greiddu atkvæði hér.
Skráð af TótiTue, 12 May 2009 14:11
Athugasemdir
Þú verður að skrá þig inn til að skilja eftir skilaboð
Click here to comment without signing in
