logo

Tóti

Þú gætir verið genetískt kjarnafylgi D ef...

... þú notar orðið kommúnisti í almennum samræðum eins og það hafi einhverja tilvísun til einhvers í nútímanum.

... ef þú notar það í fyrstu fimm setningunum í samræðum um þjóðmál þarftu ekki að lesa lengra.

... þú horfir á framsóknaríhaldsmanninn Steingrím Jarl og sérð vinstri mann.

... þú þjáist af Latte-fælni og grunar alla sem drekka þann ESBgörótta drykk um landráð.

... þú heldur að *þeir* séu að koma að taka allt af þér.

... þú heldur að í 101 Reykjavík séu bara dópistar, aumingjar og kommúnistar. (Að vísu er bæði Alþingi og Stjórnarráðið þar...).

... þú heldur að frjálshyggja sé hugmyndafræði sem sé ástæða til að útfæra betur - bara með öðru og betra fólki.

... þú heldur að íhaldssemi sé hægri stefna.

... þú heldur að samvinna með öðrum ríkjum sé framsal á fullveldi.

... þér finnst ennþá Davíð Oddsson vera hnyttinn og skemmtilegur ræðumaður.

... þér finnst það vera grundvallaratriði að fá að borga fyrir að horfa á berar stelpur glenna sig.

... þér finnst óþægileg tilhugsun að fólk úr öðrum flokkum en D vinni ábyrgðarstörf í þjóðkerfinu.

... þér finnst Mogginn sinna ábyrgri fréttamiðlun en aðrir fjölmiðlar birta bara taktíska leka frá fólki úr öðrum flokkum í stjórnkerfinu.

... þér finnst það skipta máli í atvinnulífinu í hvaða flokki einhver stendur.

Skráð af Tóti
Fri, 24 Apr 2009 15:59

Athugasemdir

Þú verður að skrá þig inn til að skilja eftir skilaboð

Click here to comment without signing in

Name:
Website:
Comment:
captcha
Enter the code:

Bylgja Valtýsdóttir

Þú ert viðurstyggilega fyndinn :D 2009-04-24T18:13:03.000Z