Tóti
Krassað á síma

Þeir sem þekkja mig vita að mér finnst voða þægilegt að krassa á eitthvað þegar ég er að velta hlutunum fyrir mér. Sjaldnast tekst öðrum að skilja krassið, en það hjálpar mér að muna alls kyns tengsl.
Ég hef prófað ýmsan hugbúnað sem á að henta fólki eins og mér við svona mindmapping æfingar, en ekki fundið neitt sem hjálpaði mér við tengslin. Fyrr en núna.
iNapkin fyrir iPhone er akkúrat málið. Þó að það setji svona sæta servíettu undir allt sem maður dedúar við er það ekki að reyna að gera neitt annað en að leyfa mér að krassa, geyma og flytja yfir á tölvu. Sem var akkúrat það sem ég þurfti; að geta verið með krassblokkina með mér, geta geymt krassið og geta flutt það eitthvað og sorterað. Ekkert að reyna að lesa úr því eitthvað vitrænt, því það er ekki hægt.
Skráð af TótiWed, 18 Mar 2009 10:17 Tech thoughts, Gadgets and Gizmos, Gadgets and Gizmos, Tech thoughts
Athugasemdir
Þú verður að skrá þig inn til að skilja eftir skilaboð
Click here to comment without signing in
